24.9.2009 | 12:13
Nú blogga ég alfarið á gandri.com
Ég hef fyrir nokkru ákveðið að færa bloggið mitt yfir á gandri.com
Þetta er alfarið fagleg ákvörðun og hefur ekkert með það að gera að Morgunblaðið er að leggjast af sem marktækur fjölmiðill.
Ég óska hér með eftir upplýsingum um hvernig maður flytur blogg héðan sem xml-færslur.
kveðja,
Guðmundur Andri Skúlason
Bloggar | Breytt 20.3.2010 kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.9.2009 | 00:13
Opið bréf til Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra
Gylfi Magnússon.
Þú lést hafa eftir þér í blöðum nýlega, að það sem vantaði væru traustir lántakendur. Ég vil leyfa mér að mótmæla þessari mjög svo vanhugsuðu ályktun hjá þér.
Samkvæmt minni bók þá er það sem helst vantar hér á landi, sæmilega hæfir ráðamenn. Einhverjir sem þora að taka á þeim bráða vanda sem steðjar að. Vanda sem hefur steðjað að allt frá því við upphaf árs 2008.
Vanda sem fengið hefur að skjóta rótum í innviðum þjóðarinnar án þess að nokkuð hafi enn verið gert sem teljandi gagn er að.
Vissulega hafa borist pólitískar yfirlýsingar. Fyrirsagnir í blöðum um að heimilum og skuldurum verði bjargað.
Skjaldborgir og velferðabrýr hafa verið teiknaðar.
Og enn bíðum við innan um hrunrústir framtíðardrauma okkar.
Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vekja enga von í okkar brjóstum um að hér verði gripið til raunhæfra aðgerða sem einhverju skila.
Þvert á móti sýnist okkur sem hugmyndaauðgi ráðamanna sé endanlega þrotinn. Aðgerðakvíðinn hefur yfirtekið skynsemina og kjarkurinn hljópst á brott með trúverðugleikanum.
Nú er svo komið að ekki verður lengur við það stætt að bíða. Við þurfum að bregðast við og þess vegna blásum við, lánþegar Frjálsa fjárfestingabankans, til sóknar gegn óréttmætu, ólöglegu og spilltu sérhagsmunakerfi.
Við stöndum upp, viðurkennum styrk okkar og gerum okkur að sama skapi grein fyrir vanmætti ykkar.
Við krefjumst lausna.
Slitastjórn Frjálsa fjárfestingabankans er vanhæf til að sjá um hagsmuni bankans og þar með örlög okkar, lánþeganna, þar sem þeir hinir sömu sitja jafnframt í slitastjórn SPRON. Hér er um greinilegan og allt að því hættulegan hagsmunaárekstur að ræða sem aðeins mun leiða til óviðunandi niðurstöðu fyrir alla hagsmunaaðila.
Við krefjumst því að fá aðkomu að samningum við kröfuhafa Frjálsa fjárfestingabankans, í þeim tilgangi að semja beint við þá um leiðréttingu skulda sem við stöndum frammi fyrir að borga.
Lánasafn það sem bankinn á er í raun aðeins að verðmæti núvirtra framtíðarafborgana lánþegana og um leið og lánasafn fer í vanskil, þá lækkar verðið og verði vanskil viðvarandi, þá telst lánasafnið nánast ónýtt á alþjóðlegum fjármálamarkaði þar sem núvirt greiðsluflæði er hríðfallandi stærð.
Við höfum því afl til samninga sem hvorki þú, í krafti ráðherraembættis, né bankinn, í krafti hagsmunaárekstra, hafa yfir að ráða.
Við lýsum okkur tilbúin til aðgerða verði ekki við okkur rætt, kröfum okkar mætt og ranglátum innheimtuaðgerðum hætt.
Aðgerðir felast í greiðslufalli, enda ljóst að greiðsluvilji hins skynsama þegns er á þrotum.
Ef þú, hæstvirtur viðskiptaráðherra, ert þeirrar skoðunar að hér þurfi að grípa til lausna, þá mælumst við til að þú setjist niður með okkur og vinnir þig í átt að þeirri lausn.
Í samstarfi við fólkið í landinu, okkur, lánþegana.
Þjóðina.
Með vinsemd og virðingu,
Guðmundur Andri Skúlason
Ásakór 12 – IS-203 Kópavogur
615 1522 – 445 2580
gandri@internet.is
http://gandri.wordpress.com
|
Óraunsæi að hundsa verkfall |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.8.2009 | 12:16
Við, almenningur erum afl og við bíðum ekki lengur
Á fyrsta degi varð lítil bloggfærsla á lítt lesinni vefsíðu til þess að tugir einstaklinga lýstu vilja sínum til að taka þátt í verkefninu um að taka yfir Frjálsa fjárfestingabankann.
Eftir tvo daga höfðu yfir eitt hundrað einstaklingar haft samband og lánasafnið sem þar stóð á bak við komið í um fjóra milljarða.
Þessi viðbrögð sýna okkur fram á að við getum ef höfum þor, dug og vilja til að láta sverfa til stáls.
Við megum vera viðbúin því að bæði ráðamenn, sem og forsvarsaðilar Frjálsa fjárfestingabankans geri það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr okkur máttinn.
Þessir aðilar munu segja að við séum lítill hópur með veika rödd. Að við höfum ekki að neinu að keppa og þessir aðilar munu segja að við höfum engin áhrif, að aðgerðir sem þessar séu okkur hættulegar og ekki til neins nema safna upp lögfræði- og innheimtukostnaði.
Það eru eðlileg viðbrögð, enda vita þessir aðilar hver máttur samstíga almennings er.
Ef við horfum raunsætt á hlutina þá getum við gert ráð fyrir að þessi hópur eigi bara eftir að stækka. Við munum því eflast enn frekar.
Samanlögð lánastaða okkar er þegar orðin um fjórir milljarðar. Ef við gerum ráð fyrir að af hverri milljón eigi að greiða kr. 5.600,- á mánuði þá er hægðarleikur að reikna sig á þá niðurstöðu að við, sem hópur, stöndum á bak við 23 milljóna innkomu í sjóði bankans, MÁNAÐARLEGA.
Við getum með öðrum orðum lækkað innkomu Frjálsa fjárfestingabankans um tæpar 23 milljónir á mánuði, NÚ ÞEGAR.
Það gera hátt í 280 milljónir á ári.
Til samanburðar þá voru hreinar vaxtatekjur bankans árið 2007 um 323 milljónir.
Heildarútlán bankans til viðskiptavina um mitt ár 2008 voru 76 milljarðar.
Á örfáum dögum höfum við náð að sameina fólk sem stendur á bak við 5,3 % af útlánum bankans eins og þau stóðu um mitt ár 2008.
Við erum því klárlega orðin rödd sem vert er að hlusta á. Við erum orðin afl sem vert er að taka mark á.
Við erum almenningur og við látum ekki segja okkur hvað við getum og hvað ekki.
Við munum bara verða fleiri, sterkari og um leið eiga raunhæfari möguleika á að leiðrétta skuldastöðu okkar til samræmis við eignastöðu og hvers við væntum þá er við skrifuðum undir lánasamninga við Frjálsa fjárfestingabankann.
Ég mun boða til fundar með ykkur í næstu viku og hvet ég ykkur öll til að mæta. Við erum hópur sem samanstendur af einstaklingum úr öllum þjóðfélagsþrepum, með lán allt frá milljón og langt norður fyrir hundrað .
Við skuldum bæði verðtryggt og gengistryggt, í íbúðum, bílum og fleiru.
En við eigum það öll sameiginlegt að á okkur hefur verið brotið.
Þess vegna viljum við réttláta málsmeðferð og réttlátt uppgjör skulda okkar.
Við erum rétt að byrja.
Takk fyrir viðbrögðin.
Guðmundur Andri Skúlason
Ásakór 12
203 Kópavogur
s: 615 1522 – 445 2580
gandri@internet.is
|
Víki verði fyrirvörum hafnað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.8.2009 | 07:24
Ég, í nafni skuldunauta, vil taka yfir banka.
Ég undirritaður, Guðmundur Andri Skúlason, kt. 190471-4629, óska eftir að komast í samband við skuldara Frjálsa fjárfestingabankans í þeim tilgangi að mynda með skuldunautum bankans hóp sem tæki að sér milliliðalaust, að semja við kröfuhafa bankans.
Frjálsi fjárfestingabankinn er sem stendur settur undir slitastjórn sem hefur það eina hlutverk að hámarka eignir þær er Frjálsi fjárfestingabankinn hafði yfir að ráða þá er ákveðið var að slíta starfsemi bankans.
Eignir Frjálsa fjárfestingabankans eru í meginatriðum veðskuldabréf hvar við, skuldunautar bankans, erum skuldarar og trygging fyrir skuldinni er í fasteignum okkar eða bifreiðum.
Nánar á: gandri.wordpress.com
Þeir sem áhuga hafa á að vinna að hagsmunum þessum eru beðnir að hafa samband við undirritaðan.
Guðmundur Andri Skúlason
Ásakór 12
203 Kópavogur
s: 615 1522 – 445 2580
|
Vilja taka yfir Frjálsa fjárfestingabankann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.8.2009 | 12:22
Þráinn njóti sannmælis...
Ég gekk til liðs við Borgarahreyfinguna í þeim tilgangi að vinna úrbræddri stjórnsýslu eitthvað gagn. Ég vildi koma á breytingum, vinna að heilbrigðum samskiptum með opinni umræðu og umfram allt þá vildi ég vinna að hagsmunum fólksins og þar með mínum eigin þar sem ég er fólkið ásamt ykkur. Við erum þjóðin.
Þrír þingmenn okkar sem fóru á þing í nafni þjóðarinnar hafa síðan ákveðið að beita fyrir sig öllum þeim vinnubrögðum sem ég, ásamt svo mörgum öðrum, hétum að standa gegn.
Rætin skrif, skröksögur og undirlægjuháttur.
Ég hef frá upphafi lýst yfir stuðningi við Þráin Bertelsson, ekki af því að ég sé neitt sérstaklega sammála honum alltaf, heldur af því að hann er sá aðili í erjum þingflokksins sem breytti rétt.
Ég lagði til að stjórn BH gerði slíkt hið sama og lýsti opinberlega stuðningi við Þráin og hans málstað.
Mér finnst sem Þráinn njóti ekki sannmælis í þeirri umfjöllun sem á undan er gengin varðandi sundurlyndi þingflokksins og því birti ég hér tölvupóstsamskipti milli stjórnar og þingflokks BH frá því 7. ágúst.
Þar kemur fram, að Þráinn vildi sættir og lagði sig fram um að þær næðust. En þríleikur þremenninganna varð til þess að kveikja elda sem ekki yrði hægt að slökkva. Og nú hafa þessir eldar brennt flestar brýr að baki Borgarahreyfingunni.
Allt í nafni brjóstumkennanlegs metnaðar.
On 7.8.2009, at 19:01, Margrét Tryggvadóttir wrote:
Sæl öll,
í viðhengi eru umbeðin svör okkar við tillögum stjórnar.
Bestu kveðjur,
Margrét
On 7.8.2009, at 20:34, Þráinn Bertelsson wrote:
Sæl Margrét, Þór og Birgitta.
Í dag lagði ég fyrir Sigga Hrelli ákveðnar hugmyndir um lausn á þeim vandamálum sem hrjá þinghópinn og Borgarahreyfinguna og jafnframt ræddi ég sáttaleið sem mér fannst koma til greina til þess að geta í framtíðinni sameinað þingflokkinn um leið.
Hafandi lesið þetta bréf ykkar til stjórnar sem er uppfullt af lygum og óhróðri um mig, þar sem lagt er til að ég segi af mér þingmennsku hið bráðasta, ætla ég að draga sáttahugmyndir mínar til baka. Við ykkur vil ég engar sættir. Þið eruð fólk af því tagi sem ég kæri mig ekki um að umgangast og ennþá síður að vinna með – og ykkur mun ég aldrei treysta til annars en þjóna ykkar brjóstumkennanlega metnaði.
Þráinn Bertelsson
On 7.8.2009, at 21:12, Margrét Tryggvadóttir wrote:
Af gefnu tilefni vil ég benda á að í bréfi okkar er einungis lagt til að Þráinn kalli inn varamann á meðan hann gerir upp við sig með hvaða hætti hann hyggist koma að málefnum hreyfingarinnar. Ekki er lagt til að þráinn segi af sér. Vel getur verið að Þráni sé fullljóst hver framtíðaraðkoma hans að málefnum Borgarahreyfingarinnar eigi að verða og þá væri einmitt ágætt fyrir okkur hin að fá upplýsingar um hana.
Bestu kveðjur,
Margrét metnaðarfulla
On 7.8.2009, at 21:22, Þráinn Bertelsson wrote:
Sæl Margrét metnaðarfulla.
Ég hef fylgt stefnu Borgarahreyfingarinnar og greitt atkvæði samkvæmt stefnuskrá og kosningaloforðum. Ég hef engan trúnað rofið, ég hef engan svikið, ég hef engu logið og hef enga ástæðu til að segja af mér þingmennsku. Ég læt þar að auki ekki ósannindafólk eins og ykkur segja mér fyrir verkum – og allrasíst hrekja mig eitt né neitt. Þið eigið að skammast ykkar – ef þið kunnið það.
Þ
On 7.8.2009, at 22:14, Margrét Tryggvadóttir wrote:
Takk Katrín fyrir að vera til. Eitt sem mig langar að ræða við þig. Ég hef miklar áhyggjur af Þráni og þar sem þú þekkir hann vel og þekkir e.t.v. betur inn á fjölskyldu hans eða forssögu en ég langar mig að bera þetta upp við þig. Kannski er það ímyndun að þú sért betur inn í hans málum en við en – það má alla vega reyna. Við höfðum áhyggjur af því snemma í sumar að hann væri að síga í eitthvert þunglyndi en svo virtist það brá af honum. Ég ræddi við sálfræðimenntaðann mann í dag sem er vel inni í málum hreyfingarinnar og hann grunar að Þránn sé með altzheimer á byrjunarstigi. Hann tók það skýrt fram að þetta væri einungis kenning og auðvitað hefur hann ekki rannsakað Þráinn. Ég hafði ekki leitt hugann að slíku þótt mér fyndist þetta skýra margt. Hvað finnst þér?
Kv.,
MT
On 7.8.2009, at 22:17, Guðmundur Andri Skúlason wrote:
Sæl Margrét,
Nú verður þú þegar að hringja í Þráinn og biðja hann afsökunar, en þetta bréf um alzeimer og fleiri pælingar fór á alla stjórnina en ekki bara Katrínu. Veit að þetta hljóta að hafa verið mistök hjá þér, en mistök engu að síður og þau verður þú að leiðrétta og lagfæra strax, ekki Borgarahreyfingarinnar vegna, heldur þín og þó sérstaklega Þráins vegna.
Kv. Gandri.
On 7.8.2009, at 22:27, Margrét Tryggvadóttir wrote:
Sæll,
Þetta voru mikil mistök, ég ýtti á replay og áttaði mig ekki fyrr en ég fékk það sent sjálf. Þráinn er hins vegar ekki á þessum lista. Ég er búin að biðja stjórnina afsökunar en eftir síðasta skítkast frá Þráni held ég að hann eigi það ekki inni hjá mér. Auk þess hef ég virkilegar áhyggjur af honum, eins og fram kom.
Kv.,
Margrét
Svo mörg voru þau orð það kvöldið.
Ég varaði við þeirri leið sem hreyfingin, og þá sérstaklega tveir til þrír einstaklingar þingflokksins, voru á í þessari ræðu (http://gandri.wordpress.com/files/2009/08/rc3a6c3b0a-flutt-a-felagsfundi-23-mai-2009.doc) sem flutt var á félagsfundi í vor.
Í framhaldinu var blásið til sátta, en undirritaður ásamt Gunnari Sigurðssyni og Lilju Skaftadóttur, hafði varla snúið sér við þegar Þór Saari og Birgitta Jónsdóttir hófu að vinna gegn þeirri sátt.
Steininn tók síðan líklega úr þegar Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir náðu ekki kjöri sem aðalmenn í stjórn hreyfingarinnar.
Ég skrifa þessi ósætti og það hve klaufalega hefur verið á málum haldið, að mestu leiti á hjákátlegan hégóma Þórs Saari og laumulegan yfirgang Birgittu og Margrétar.
Það er sorglegt þegar fámennur hópur með aðgang að fjölmiðlum getur slátrað hugsjónahreyfingu fjöldans.
|
Þráinn segir sig úr þingflokki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
6.8.2009 | 23:54
Félagsmaður tjáir sig...
Borgarahreyfingin og þingflokkurinn
Það er skrifað og skeggrætt um meint styrjaldarástand innan Borgarahreyfingarinnar þessa dagana.
Það er reyndar ljóst að þingflokkur hreyfingarinnar er klofinn. Manni er því eðlilega spurn, hvers vegna og af hvaða orsökum sá klofningur stafar.
Það virðist vera að upphafið megi rekja til atkvæðagreiðslunnar um ESB þar sem þrír þingmanna greiddu gegn þingsályktnartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður, en einn þingmaður greiddi með tillögunni.
Frá mínum bæjardyrum séð er þetta harla ómerkileg ástæða til klofnings. Ástæðan væri miklu frekar hve klaufalega var að málum staðið.
En það að einhverjir slái pólitískt vindhögg er varla ástæða djúpstæðs klofnings.
Og hvað er þá að?
Þráinn hefur gefið það út að ekki sé hægt að vinna með þeim Birgittu, Margréti og Þór sökum óheilinda og trúnaðarbrests. Hann segir að “þau þrjú [hafi] yfirleitt þann háttinn á að líta á alla sem fáráðlinga, nema um þau sjálf sé að ræða,”.
Hér er um býsna alvarlegar ásakanir að ræða og ljóst að rót ágreiningsins liggur dýpra en í einstakri atkvæðagreiðslu.
Þetta er svosem ekki í fyrsta skipti sem blæs lítillega um Borgarahreyfinguna.
Í vor var haldinn félagsfundur þar sem ég flutti ræðu sem olli vægast sagt talsverðu fjaðrafoki, enda var þar fjallað um meintan trúnaðarbrest milli þingflokks og stjórnar ásamt fleiri atriðum er vörðuðu innra starf hreyfingarinnar.
Lítið höfum við lært frá því í vor.
Borgarahreyfingin geldur fyrir reynsluleysi og jafnframt býr hreyfingin við óþroskað skipulag og vanþróaða verkferla.
Allt þetta ætti að vera einfalt að laga, enda kemur reynslan með tímanum og skipulagið þroskast með þróaðri verkferlum.
Það að þingmenn hundsi félagsmenn og neiti að tala við nema þrjá einstaklinga innan stjórnar Borgarahreyfingarinnar er aftur á móti mál sem erfitt gætir reynst að laga.
Þingflokkurinn hefur ítrekað fengið boð frá stjórn um að mæta á fund í þeim tilgangi að ræða þann trúnaðarbrest sem upp er kominn. Því hefur ekki verið svarað.
Þingflokkurinn hefur einnig unnið gegn samþykktum hreyfingarinnar og farið gegn ákvörðunum stjórnar varðandi innra skipulag með stofnun sérstaks félags um starf þingflokksins. Þannig hafa þingmenn Borgarahreyfingarinnar einangrað sig frá grasrótinni og lokað á opið upplýsingaflæði milli félagsmanna.
Slíkt er í algjörri andstöðu við helsta stefnumál hreyfingarinnar, sem er að stuðla að opinni og gegnsærri stjórnsýslu.
Ástæða trúnaðarbrests og klofnings innan Borgarahreyfingarinnar virðist því eiga upphaf í því að þingmenn vilja ráða meiru en umboð þeirra segir til um.
Þingmenn eru klárlega hluti Borgarahreyfingarinnar og þingflokkur Borgarahreyfingarinnar er þar af leiðandi skipulagseining sem heyrir undir Borgarahreyfinguna, enda þingmenn kjörnir af kjósendum Borgarahreyfingarinnar.
Þingmenn starfa síðan innan þings og greiða atkvæði í samræmi við samvisku sína og ekkert við það að athuga, en samviska þeirra hlýtur að eiga sér stoð í stefnuskrá hreyfingarinnar, enda leituðu þeir kjörs á grundvelli hennar.
Við unnum okkur fylgi með vinnu og fundarhöldum um allt land. Við unnum okkur fylgi með því að kynna stefnu okkar og líklega unnum við okkur hvað mest fylgi með því að lofa kjósendum okkar því að við værum ekki sama marki brennd og önnur stjórnmálaöfl. Við værum með öðrum orðum óspillt afl á leið fyrir hönd þjóðar á þing.
Ef þingmenn okkar treysta sér ekki til að vinna eftir þessu ber þeim að kynna málstað sinn kinnroðalaust fyrir félagsmönnum.
Sjái þingmenn sér ekki fært að mæta á fast skipulagða félagsfundi sem haldnir eru á tveggja vikna fresti, ber þeim skylda til að koma málstað sínum á framfæri með öðrum hætti, til að mynda með því að gefa varamanni sínum skýrslu.
Það getur þó verið erfitt þegar þingmenn tala helst ekki við varamenn sína.
Borgarahreyfingin er mikilvægt afl í íslenskum stjórnmálum, mikilvægara en svo að við þegjum yfir vandamálum af ótta við umtal.
Þingmenn hreyfingarinnar verða því að gera hreint fyrir sínum dyrum og jafnframt skýra af hverju þeir neita að svara fyrirspurnum stjórnar og fara að settu skipulagi hreyfingarinnar.
Upphafið að hruni þjóðfélags er þegar einn aðili telur sig ómissandi við stjórnartaumana.
Að sama skapi er uppaf að hruni stjórnmálahreyfingar þegar þingmenn telja sig mikilvægari en hreyfingin sem þeir voru kjörnir á þing fyrir.
|
Margrét tjáir sig um fundinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.8.2009 | 12:16
Hlaupum á Kaupþing.
Kaupþing nýtt og gamalt sýnir nú sitt rétta andlit. Skammlaust koma þeir fram, úr skilanefndum, slitastjórnum og fyrrverandi stjórnum, og heimta lögbann á eðlilega umfjöllun.
Allt út af þessum glærum.
Ég hvet fólk til að dreifa þessu sem víðast, kynna sér innihaldið og fyrir þá sem kost eiga á, hætta viðskiptum við Kaupþing.
Munið að samtaqka getum við knésett banka og stofnanir sem brjóta gróflega gegn siðferðisvitund þjóðar. Það skiptir því ekki máli HVERT við flytjum fátæklegar innistæður okkar, heldur skiptir öllu máli HVORT við flytjum þær úr Kaupþingi.
Þannig sendum við skýr skilaboð um að við bæði þorum, getum og viljum.
Ef almenningur gerir áhlaup, þá fellur bankinn.
Hlaupum því á bankann, öll sem eitt.
ps.
Mig vantar lögfræðing til að annast málaferli fyrir mig á hendur EXISTA sem eiganda og Lýsingar sem viðsemjanda.
Viðkomandi þarf að hafa kjark.
Málið mun hafa fordæmisgildi og ætti, ef vel gengur, að breyta hag íslensks almennings til hins betra og þá á kostnað arðræningja þjóðarinnar.
- Umsóknir sendist á gandri@internet.is eða gandri.mail@gmail.com
|
Netverjar æfir yfir lögbanni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.7.2009 | 13:09
Þetta er auðvitað ekki normal !!
... þannig að ríkið á að greiða ríkinu sekt... fyrir að hamla samkeppni við...
Ríkið !!!
Þetta er auðvitað ekki einu sinni nálægt því að vera normal samfélag.....
Vaknið !
|
Teymi gert að greiða 70 milljónir í sekt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2009 | 14:20
700 þúsund á hverja fjölskyldu...
Rétt tæpar 700 þúsund krónur er sú upphæð sem Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur Kaupthing... thing... fyrr og nú, réttlætti að rukkuð yrði af mér í stað þeirra sem tóku peninginn.
Persónulegar ábyrgðir Kaupthings fólksins vegna lána sem það hafði tekið til að kaupa hlutabréf í bankanum til þess að græða og fá greiddan arð... sem það hafði auðvitað fengið greiddann fram að hruni... voru um 50 þúsund milljónir takk fyrir.
-það er um 165 þúsund kall á hvern Íslending eða sem nemur 660 þúsundum íslenskra króna á hverja vísitölufjölskyldu.
Bara lánið hans Kristjáns Ara var nálægt 12 þúsund kalli á hverja fjölskyldu og fyrir þann pening getum við hjónin farið sex sinnum í bíó... – saman.
Þetta er bara svona lítið dæmi um hve gjörblint yfirvaldið er á stöðu okkar hins forpínda pöpuls.
Íslendingar !
Vaknið !
Þetta er ekki eðlilegt ástand !
|
Vanhæfi Helga breytir ekki lögmæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.6.2009 | 11:11
Fallinn af stalli...
Það er sorglegt að sjá vel menntaða og áður virta menn á borð við Sigurð G. Guðjónsson lögfræðing, leggjast flatur í ómálefnanlegar skotgrafir þess sem vondann málstað hefur að verja.
Sigurður G. fellur í að uppnefna alla þá sem ekki eru honum eða útrásinni sammála, nafnlausar bloggraggeitur. Hann færir enginn rök fyrir því. Reynir heldur ekki að færa rök fyrir því að málstaður þessa svokallaða raggeitahóps sé rangur.
Hann bara hrópar.
En hvað er það sem þessi annars ágæti og áður virti maður er að hrópa?
Jú.
Hann er að hrópa á vernd. Vernd þess sem áður setti okkur á höfuðið. Vernd afskiptaleysis okkar almennings.
Vernd meðvirkni og þagnar.
Já, Sigurður G. vill ekki umræðu og hann vill alls ekki opna og lýðræðislega umræðu.
Hann vill setja öll mál aftur í gamla klíkufarveginn þar sem hver og einn er dómari í eigin sök.
Hann hefur með orðum sínum og skrifum sett sig út af leikvelli gagnrýninnar umræðu.
Sigurður G. er fallinn af stalli virta fræðimannsins og dottinn niður í skotgröf hagsmunapotarans.
Ég heiti Guðmundur Andri og ég frábið mér að vera kölluð nafnlaus raggeit.
|
Virði eignasafna nýju bankanna er mjög á reiki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.6.2009 | 17:39
Skammarlegur hræðsluáróður Jóhönnu & Co.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.6.2009 | 12:51
Þarf ekki að skoða heildarmyndina?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.6.2009 | 09:21
Viðskiptalegt siðferði !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2009 | 00:17
Framboð til stjórnar XO...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2009 | 18:26
Staðfestir forsetinn ??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.6.2009 | 13:06
Þið... íslensku "Blaðamenn" !!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.5.2009 | 10:23
Þess vegna kallast þetta leiðrétting...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.5.2009 | 21:57
Þess vegna tókum við séns á jenum...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
8.5.2009 | 17:25
Veskin tæmd með aðstoð IMF
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2009 | 15:01
Hvernig væri að setjast niður og anda?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



